Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Þetta mál er margþætt og margslungið. Þetta snertir peninga, þetta snertir siðferði og þetta snertir lýðræði. Þannig væri eðlilegt að spyrja hvort ríkisstjórnin ætli að láta stjórnarandstöðunni í té fjármuni til að standa straum af kynningu á sínum sjónarmiðum. Ég vil gera skýran greinarmun á upplýsingum sem verið er að koma á framfæri við almenning annars vegar og áróðri hins vegar. Ég vil spyrja hæstv. forsrh. hvernig hann réttlæti áróður af þessu tagi siðferðilega.