Fundargerð 122. þingi, 143. fundi, boðaður 1998-06-03 20:30, stóð 20:30:01 til 22:31:37 gert 3 22:46
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

143. FUNDUR

miðvikudaginn 3. júní,

kl. 8.30 síðdegis.

Dagskrá:

[20:30]

Útbýting þingskjala:


Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður).

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur til umráða 20 mínútur sem skiptust þannig að í fyrstu umferð hafði hver þingflokkur 8 mínútur til umráða og 6 mínútur í tveimur síðari umferðunum. Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv., utan flokka, hafði 8 mínútur til umráða í lok fyrstu umferðar.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Alþb. og óháðir, Sjálfstfl., þingflokkur jafnaðarmanna, Framsfl. og Samtök um kvennalista.

Ræðumenn Alþb. og óháðra voru Svavar Gestsson, 8. þm. Reykv., í fyrstu umferð, Sigríður Jóhannesdóttir, 8. þm. Reykn., í annarri umferð og Bryndís Hlöðversdóttir, 12. þm. Reykv., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. voru Geir H. Haarde fjmrh., í fyrstu umferð, Kristján Pálsson, 10. þm. Reykn., í annarri umferð og Sturla Böðvarsson, 2. þm. Vesturl., í þriðju umferð.

Ræðumenn þingflokks jafnaðarmanna voru Jóhanna Sigurðardóttir, 13. þm. Reykv., í fyrstu umferð, Rannveig Guðmundsdóttir, 5. þm. Reykn., í annarri umferð og Svanfríður Jónasdóttir, 6. þm. Norðurl. e., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Framsfl. voru Páll Pétursson, félmrh. í fyrstu umferð, Finnur Ingólfsson viðskrh., í annarri umferð og Hjálmar Árnason, 7. þm. Reykn., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Samtök um kvennalista voru Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv., í fyrstu umferð, Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn., í annarri umferð og Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn., í þriðju umferð.

[20:31]

[22:30]

Útbýting þingskjals:

Fundi slitið kl. 22:31.

---------------