Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Eðlilegast væri að samþykkja þessa tillögu og senda þetta frv. eins vanbúið og það er heim til föðurhúsanna. En í ljósi þess að hér á eftir er að finna 12 markvissar og greinargóðar brtt. við þetta frv., brtt. sem í raun fela í sér nýtt frv. sem ég og fleiri þingmenn jafnaðarmanna hafa hér flutt, þá vil ég láta á það reyna. Ég hef fulla trú á því að skynsemi ráði í þetta sinn. Því greiði ég ekki atkvæði.