Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Því miður er það svo að þetta annars merka og spennandi mál sem hér er á ferð hefur verið eyðilagt. Upplegg af hálfu ríkisstjórnarinnar og hæstv. heilbrrh. er með slíkum endemum og satt að segja meðferð meiri hluta heilbr.- og trn. sömuleiðis að ekki er nokkur vegur að standa að samþykkt þessa frv. eins og það lítur út í andartakinu. Því segi ég nei.