Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Hér er vísað til tölvunefndar. Menn segjast hafa slegið nokkra varnagla í frv. Siðanefnd vísindamanna á að gæta hagsmuna almennings og sjúklinga og jafnframt tölvunefnd. Báðir þessir aðilar hafa lýst yfir vantrausti á frv. og hafa sagt að Alþingi eigi að setja þeim skýrari starfsreglur, ella treysti þeir sér ekki til að vinna samkvæmt þessu frv. Ég vil vekja athygli á því að þeir sem eiga að gæta hagsmuna almennings og sjúklinga hafa varað Alþingi við því að samþykkja þetta frv. Við ætlum að treysta á dómgreind þeirra. Hlustum þá á orð þeirra núna.