Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Samfylkingin mun sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Hjáseta Samfylkingarinnar byggir á málsmeðferð í iðnn. Hins vegar finnst okkur þingmönnum Samfylkingarinnar í iðnn., þeirri er hér stendur og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, mjög jákvætt að nefndin ætlar að taka málið aftur fyrir og við teljum að í nefndinni verði að fara yfir tillögugreinina og hugsanlega komi til greina að leggja fram brtt. við hana. Við munum sitja hjá við atkvæðagreiðsluna en skoða málið ásamt fulltrúum í iðnn. á ný.