Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil stuttlega gera grein fyrir brtt. sem flutt er við frv. nú. Lagt er til að í stað orðanna ,,lögum nr. 96/1992, um húsgöngu- og fjarsölu`` í síðari málsl. 16. gr. komi: lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Hér er því aðeins um að ræða að breyta tilvísun en engin efnisleg breyting.