Staðfesting ýmissa ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar

Fimmtudaginn 04. maí 2000, kl. 16:41:17 (6917)

2000-05-04 16:41:17# 125. lþ. 106.6 fundur 587. mál: #A staðfesting ýmissa ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar# þál. 12/125, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 125. lþ.

[16:41]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Á hv. Alþingi er alltaf verið að taka einhverjar ákvarðanir og þetta er ein af þeim ákvörðunum sem við stöndum frammi fyrir að taka en hún kemur okkur alls ekki á óvart. Umræða um þetta hefur farið fram áður á hv. Alþingi og í tengslum við þá þáltill. sem borin var fram af fyrrv. hæstv. ráðherra. Ég tel því að málið hafi fengið ágætiskynningu og undrast það í sjálfu sér að hv. þm. hafi ekki reiknað með að til þess kæmi að þessi ákvörðun yrði tekin.