Guðrún Ögmundsdóttir:
Virðulegur forseti. Hér er stigið skref fram á við hvað báðar tillögurnar varðar í þessu frv. og hér er tryggður réttur þessara barna eins og allra annarra barna þrátt fyrir það að þau búi með hjónum í staðfestri sambúð. Þingflokkur Samfylkingarinnar greiðir þessu frv. atkvæði sitt. Ég segi já.