Frsm. meiri hluta samgn. (Árni Johnsen) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Jón Bjarnason getur þess í nál. sínu að líklegt þyki í sambandi við þá staði sem eru til umræðu að á þeim eða í tengslum við þá sé stundað vændi í einhverjum mæli. Alltaf er hyggilegra að fullreyna slíkt áður en sett er fram eitthvað í þeim efnum eins og hér er gert og ég vil spyrja hv. þm. hvort það hafi verið fullreynt.