Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil að fram komi að fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi hafi ekki komið saman til að samræma sjónarmið sín í þessu efni um framvindu þinghaldsins að öðru leyti en því sem rætt hefur verið á fundum þingflokksformanna. Þar hefur það verið samdóma álit að stefna að því að hraða þinghaldinu. Þar til önnur sjónarmið verða uppi eða menn samræma stefnu sína eða sjónarmið á þeim vettvangi mæli ég ekki með því að þinghaldinu verði frestað núna.