Svör við fyrirspurn

Laugardaginn 13. maí 2000, kl. 21:02:47 (7795)

2000-05-13 21:02:47# 125. lþ. 119.91 fundur 547#B svör við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur, 125. lþ.

[21:02]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég hef áður gert athugasemd við það undir umræðu um störf þingsins að ég hafi ekki fengið viðhlítandi svör við skriflegum fyrirspurnum sem ég beindi til hæstv. fjmrh. um launaþróun innan heilbrigðisþjónustunnar. Mér finnst mikilvægt að réttur alþingismanna til að fá fullnægjandi svör við spurningum sem fram eru bornar sé virtur og óska eftir viðbrögðum við þessari ítrekun á erindi mínu.