Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hafa tilkynningar um formennsku í eftirfarandi nefndum:
Á fundi fjárln. 4. október var Jón Kristjánsson kjörinn formaður nefndarinnar og Einar Oddur Kristjánsson varaformaður.
Á fundi félmn. í dag var Arnbjörg Sveinsdóttir kjörin formaður nefndarinnar og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.
Á fundi iðnn. í dag var Hjálmar Árnason kjörinn formaður nefndarinnar og Guðjón Guðmundsson varaformaður.
Á fundi menntmn. í dag var Sigríður Anna Þórðardóttir kjörin formaður nefndarinnar og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.
Á fundi sjútvn. í dag var Einar K. Guðfinnsson kjörinn formaður nefndarinnar og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.