Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég get aðeins endurtekið það að ég fól þessari stjórn að fjalla um þetta mál. Stjórnin kom með ákveðna tillögu í því máli og ég fór að þeirri henni. Það var óheppilegt hversu langur dráttur varð á málinu en ég og starfsmenn mínir teljum að það sé fyllilega í samræmi við lög og reglur um svipuð tilvik.