Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Nú held ég að ég verði að biðja hv. þm. að lesa lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði vegna þess að ef um samkeyrslu væri að ræða, þá sér tölvunefnd um persónuverndina og fengi það hlutverk að svara því.