Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég veit að hv. þm. veit að stjórnendur sjúkrastofnana bera ábyrgð á þeim gögnum sem þar eru. Varðveisla gagna sem eru á sjúkrastofnunum er á ábyrgð sjúkrastofnananna. Ef minnsti grunur væri um að menn nýttu þessi gögn ólöglega þá væri að sjálfsögðu farið í það. Ég mundi þann sama dag og ég hefði minnsta grun um það láta landlækni rannsaka slík mál.