Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég held að þetta mál sé afar skýrt. Þessar reglur hafa ekki vafist fyrir þeim sem bjóða fram fé til að kaupa þennan tiltekna banka og það er mikilvægast. Það þarf enginn að fara í grafgötur um að ábyrgðin er ekkert sem við framseljum með okkar eigin ákvörðunum. Ég tel að það sé bundið í stjórnarskrá hvar ábyrgðin í þessu máli liggur.