Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Hér fáum við engin skýr svör. Okkur er sagt að ríkisstjórnin og menntmrn. hafi heimild til að framkvæma tilraunir. Þingið verður að fá skýr svör við því hvort hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin ætla að heimila að gera hafnfirsk börn að tilraunadýrum.