Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd fjárln. þakka hv. þm. fyrir að hafa vakið athygli á því að fjárlagaumræðan í dag er á þeim tíma sem þingsköp segja til um. Því þurfum við að halda í framtíðinni. Það er fagnaðarefni, og ég á eftir að koma að því síðar í dag þegar umræðan verður að svo skyldi hafa tekist til.
Ég vildi aðeins þakka fyrir hönd nefndarinnar að vakin skyldi hafa verið athygli á þessu.