Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:03:41 (3676)

1999-12-21 18:03:41# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:03]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og stjórnarmeirihlutinn á Alþingi ætlar að hunsa vilja meiri hluta þjóðarinnar um að lögformlegt umhverfismat fari fram vegna virkjunar í Fljótsdal. Það er vilji 80% landsmanna. Hér er lagt til að fram fari lögformlegt umhverfismat. Það verður aldrei sátt um annað. Ég segi já.