Einar Már Sigurðarson:
Herra forseti. Nú er greitt atkvæði um það mál sem er líklega hvað stærst ef litið er til atvinnu- og byggðamála í landinu. Aðstæður okkar eru því miður þannig að hallað hefur mjög á hinar dreifðu byggðir. Hér verður gerð tilraun til þess að snúa þeirri þróun við.
Herra forseti. Það bendir flest til þess að þetta muni gefa okkur ný tækifæri á Austurlandi og landinu öllu til að vinna gegn hinni uggvænlegu þróun. Herra forseti, ég segi já.