Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:23:44 (3696)

1999-12-21 18:23:44# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, KPál (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:23]

Kristján Pálsson:

Herra forseti. Við erum að greiða atkvæði um hvort loforð okkar til að styrkja landsbyggðina standi eða ekki. Ekkert hefur komið fram í umræðum síðustu daga sem gefur tilefni til að ætla að önnur leið sé til svo efna megi þetta loforð og um leið að hlífa Eyjabökkum. Málflutningur andstæðinga Fljótsdalsvirkjunar snýst um prinsipp en ekki úrræði. Ekkert bendir heldur til annars en að ríkisstjórnin hafi staðið eðlilega og lögformlega að málinu að öllu leyti. Ég segi já, herra forseti.