Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþm. Samfylkingarinnar í Reykjavík, Mörður Árnason, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv.``
Mörður Árnason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að varaþm. Framsfl. í Norðurl. e., Daníel Árnason framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi á meðan.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Valgerður Sverrisdóttir, 2. þm. Norðurl. e.``
Kjörbréf Daníels Árnasonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.