Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Miðvikudaginn 09. maí 2001, kl. 18:19:47 (7342)

2001-05-09 18:19:47# 126. lþ. 118.8 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv. 40/2001, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 126. lþ.

[18:19]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég gat um þá styð ég frv. um að breyta Orkubúi Vestfjarða í hlutafélag. Hið háa Alþingi samþykkti nýlega sambærilegt frv. um Hitaveitu Suðurnesja og ég studdi það líka með nákvæmlega sömu rökum. Ég held að sú mikla samkeppni sem að er stefnt í orkugeiranum muni leiða til þess að sífellt fleiri fyrirtæki óska eftir breytingu í hlutafélag. Ég er hlynntur þeirri þróun þannig að ég get ekki verið á móti þessu frv. þó að það kunni að vera eitthvað á bak við það sem ekki er tekin afstaða til enn þá. Ég mun þá taka afstöðu til þess þegar þar að kemur.