Breyting á XI. viðauka við EES-samninginn (fjarskiptaþjónusta)

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 10:06:08 (7461)

2001-05-11 10:06:08# 126. lþ. 120.8 fundur 638. mál: #A breyting á XI. viðauka við EES-samninginn (fjarskiptaþjónusta)# þál., Frsm. TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[10:06]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð að játa að mér finnst að þær umræður sem hér hafa farið fram af hálfu hv. síðasta ræðumanns eigi frekar heima í nefndinni. Ég hef sjálfur tekið því vel að halda aukafundi í nefndinni og koma þar að málum sem óskað er að tekin verði til umfjöllunar.

Að því er varðar það mál sem hér hefur verið nefnt sérstaklega þá er það enn óljóst hvernig það verður afgreitt. Það kemur fram á frekari fundum nefndarinnar.