Forseti (Halldór Blöndal):
Að gefnu tilefni, ræðu hv. þm., þá er það svo um útbýtingarfundi og hefur jafnan verið að þá er útbýtt þingskjölum sem ekki hafa verið tilbúin á síðasta reglulega fundi. Þess vegna eru þessir fundir kallaðir útbýtingarfundir og þessi þingskjöl eru þess vegna ný af nálinni.