Forseti (Halldór Blöndal):
Af þessu gefna tilefni vil ég taka fram að formenn þingflokka báðu ekki um fund með forseta Alþingis á laugardaginn. Það gat þess vegna ekki til þess komið að þeir bæru persónulega upp neinar óskir til forseta varðandi þetta sérstaka mál. Þess vegna get ég ekki skilið hvað hv. þm. á við með því að ég hafi með einhverjum hætti brotið samkomulag eða þann samstarfsvilja sem ég hef viljað sýna gagnvart stjórnarandstöðunni.