Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Hv. þm. geta haft ýmsar skoðanir á þessari lausn til að ljúka verkfalli og verkbanni sjómanna og útgerðarmanna. En ég bið hv. þm. að hafa skilning og samúð með því fólki sem hefur nú verið án atvinnu í nokkrar vikur og eru þolendur þessarar deilu, einnig sjómönnum og mörgum útgerðarmönnum sem eru í vandræðum. Þetta fólk munar um hvern dag. Þess vegna skora ég á hv. þm. að leggjast á árarnar og stuðla að afgreiðslu málsins svo hratt sem auðið er.