Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Við þetta þarf litlu að bæta. Við höfum farið yfir það hvað skilur á milli afstöðu þessara flokka. En ég vil taka sérstaklega fram að á sama tíma og ég árétta afstöðu Samfylkingarinnar þá hefðum við aldrei, hefðum við haft ráðin í okkar hendi, staðið að málum eins og þessi ríkisstjórn gerir, hvorki varðandi samkeppnisþáttinn né náttúrlega að nokkru leyti ljáð öðru máls.