Forseti (Halldór Blöndal):
Að þessu gefna tilefni hlýt ég að svara eins og áður að það fer eftir því hversu langan tíma tekur að afgreiða hvert sérstakt mál hvenær störfum þingsins lýkur. Það frv. sem var til umræðu í gær, eins og ég tók fram, var frá klukkan hálfellefu um morguninn til klukkan hálftvö um nóttina og komst ekkert annað mál á dagskrá.