Þorgerður K. Gunnarsdóttir:
Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hafa talað hér á undan um mikilvægi þessa málaflokks og um leið geta þess og minna á að hæstv. dómsmrh. boðaði nýja heildarlöggjöf um málefni útlendinga sem koma til með að leysa lögin frá 1965 af hólmi og er líklegt að það frv. verði flutt á hinu háa Alþingi innan tíðar.
Ég ítreka að það er óskandi að þingheimur nái sátt um jafnmikilvæg málefni og málefni útlendinga eru.