Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það er jöfnun mjög víða á Íslandi. Það er á mjólk, rafmagni og olíu og eflaust einhverju fleiru sem ég veit ekki um. Allt er þetta þjóðhagslega óhagkvæmt. Allt hefur þetta verið lagt af alls staðar nema kannski í Sovétríkjunum þar sem þetta blómstraði mjög mikið. Ég spyr hæstv. iðnrh. hvort hún telji jákvætt að hafa áfram í gildi fyrirkomulag sem var mjög mikið við lýði í Sovétríkjunum og er þjóðhagslega óhagkvæmt og kemur niður á lífskjörum þjóðarinnar.