Pétur H. Blöndal (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Umrætt frv. gengur út á það eitt að hækka gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra sem er nefskattur, um 513 kr. Þetta er alfarið skattamál og ég legg því til að málinu verði vísað til hv. efh.- og viðskn.