Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þarna fer hv. þm. ekki með rétt mál. Þetta er í samræmi við svæðisskipulag miðhálendisins. Gert er ráð fyrir því í svæðisskipulagi að til þessara úrræða geti komið í sambandi við virkjunarmál norðan Vatnajökuls. Þetta eru bara staðreyndir sem liggja fyrir.