Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseti biður hv. þingmenn að virða tímamörkin. Ef menn eru að kvarta undan kvöldfundum þá er rétt að eyða ekki öllu kvöldinu í umræður um störf forseta. (Gripið fram í: Er einhver að kvarta undan kvöldfundum?) (KolH: Það er enginn að kvarta undan kvöldfundum.) (Gripið fram í: Það er verið að kvarta undan mætingunni.) Ef forseti mætti ljúka máli sínu. Vegna orða hv. þm. þá er ekki rétt að hér séu ráðherrabekkir tómir. Hæstv. iðnrh. situr í sæti sínu og hefur forræði þessa máls eins og áður hefur verið vakin athygli á.