Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Föstudaginn 22. mars 2002, kl. 15:40:18 (6530)

2002-03-22 15:40:18# 127. lþ. 103.3 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 127. lþ.

[15:40]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er einmitt gott að heyra af því að komið hefur fram áhugi frá fleirum til að sinna þessu verkefni og fjárfesta í því. Það er auðvitað af þeim niðurstöðum sem hafa komið út úr hagkvæmniathugunum varðandi þetta mál, að álheimurinn lítur til þess að hér er um mjög góðan fjárfestingarkost að ræða og gott verkefni sem er spennandi að fara í. Það held ég að séu þrátt fyrir allt mjög góðar fréttir.