Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Af því hv. þm. nefndi ástandið á Austurlandi og Austfirðinga í þessu sambandi vil ég að hér komi fram að við munum að sjálfsögðu funda með Austfirðingum sem allra fyrst þó ekki sé hægt að nefna daginn á þessari stundu. En ég held að það sé nauðsynlegt að fara yfir málið með þeim á opnum fundi. Ég mun beita mér fyrir því að sá fundur geti farið fram sem allra fyrst.