Forseti (Árni Steinar Jóhannsson):
Eins og forseti sagði áðan er áformað að halda þingfundi áfram allt fram undir miðnætti og getur fundur því samkvæmt skilningi forseta staðið fram undir 23.30--23.45. Forseti mun taka afstöðu til þess eftir því hvernig þessum málum vindur fram og mun slíta fundi fyrir miðnætti ef umræðu um þau mál sem forseti gat um áðan lýkur ekki.