Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Miðvikudaginn 03. apríl 2002, kl. 17:43:04 (6829)

2002-04-03 17:43:04# 127. lþ. 106.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, ÖJ (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 127. lþ.

[17:43]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér stangast fullyrðingar mjög á. Þetta styður þá tillögu sem Vinstri hreyfingin -- grænt framboð hefur sett fram um að fram fari athugun og rannsókn á málinu. Æskilegt væri að þessari umræðu yrði nú skotið á frest meðan sú athugun og rannsókn fer fram.

Það er mjög alvarlegur hlutur þegar Alþingi Íslendinga er leynt upplýsingum. Og ég staðhæfi að Alþingi og þingnefndir hafi verið leyndar upplýsingum. Upplýsingum hefur verið haldið frá þeim sem þeim ber að hafa þegar þær fjalla um þetta mikilvæga mál.