Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Hér er komið að atkvæðagreiðslu um eitt stærsta mál sem Alþingi hefur haft til meðferðar, eitt stærsta mál fyrir þjóðina, Austurland og framtíðina. Upplýsingar liggja fyrir um málið á Alþingi og allar dylgjur um lygar í þessu máli eru þeim ekki til sóma sem fara með þær. Mikilvægt skref varðandi framgang þessa máls er stigið í dag. Að sjálfsögðu segi ég já og mun samþykkja þetta frv. sem hér liggur fyrir.