Umferðarlög

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 17:05:12 (7159)

2002-04-08 17:05:12# 127. lþ. 114.27 fundur 652. mál: #A umferðarlög# (Umferðarstofa o.fl.) frv. 83/2002, dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[17:05]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Stjórn Skráningarstofunnar hf. er auðvitað fullkunnugt um þetta mál. Ég geri ráð fyrir að það hafi verið rætt við starfsmenn, hef fengið upplýsingar um það. En ég bendi á það enn og aftur að stofna þarf undirbúningsnefnd sem þarf að fara yfir þetta mál og skoða betur hvernig málum verður fyrir komið og þá verður starfsmannastefnan væntanlega líka skoðuð sérstaklega.