2002-04-23 00:10:31# 127. lþ. 125.1 fundur 562. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðigjald o.fl.) frv. 85/2002, HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 127. lþ.

[24:10]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Það samkomulag sem ég gerði var við formenn þingflokkanna, að vísu með vitund og vilja formanns Samfylkingarinnar sem ég kann að meta og er þakklátur fyrir.

En ég heyri á formanni Samfylkingarinnar, hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, að hann telur að samkomulagið hafi gengið út á að ljúka þessari umræðu einhvern tíma í nótt. Þá get ég ekki séð að honum sé neitt að vanbúnaði að taka til máls og tala fram eftir nóttu.