2002-04-23 00:11:25# 127. lþ. 125.1 fundur 562. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðigjald o.fl.) frv. 85/2002, ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 127. lþ.

[24:11]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Það hefur teygst úr þessari umræðu. Ég hélt langa ræðu í dag um þetta mál þó að hún hafi kannski verið í styttra lagi miðað við umfang málsins, talaði í hér um bil 40 mínútur og ég held að í þeirri ræðu hafi ég komið sjónarmiðum okkar hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði í þessu máli á framfæri. Ég ætla ekki að teygja umræðuna frekar um málið, láta þá ræðu sem ég hélt í dag duga til að útskýra og staðfesta sýn okkar og málstað í þessu stóra máli og læt þar með ræðu minni lokið.