Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Með samþykkt þessa frv. er verið að samþykkja heimild til þess að selja 30% hlut í verksmiðju á árinu 2002. Ég tek þetta sérstaklega fram vegna þess að miðað við umræðuna eins og hún hefur verið síðustu klukkutíma sem hún hefur farið fram höfum við verið eins og aftur í fornöld. Það eru vinstri grænir sem hafa staðið fyrir þeirri umræðu. Ég segi já. (Forseti hringir.)