Fjárlög 2002

Þriðjudaginn 27. nóvember 2001, kl. 21:14:44 (2018)

2001-11-27 21:14:44# 127. lþ. 36.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2002# frv. 158/2001, GE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 127. lþ.

[21:14]

Gísli S. Einarsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég sé ástæðu til þess að endurtaka þakkir til hæstv. samgrh. fyrir svörin. Það er líka mjög gott að fá það skjalfest af hæstv. samgrh. að hann telji að það hafi engin truflandi áhrif á þá sem eru hugsanlega samkeppnisaðilar við Flugmálastjórnarvélina að hún sé nýtt á þann hátt sem verið hefur.

Herra forseti. Ég þakka fyrir svörin. Ég fékk fram það sem ég vildi fá þó að ég gleymdi reyndar einu atriði. En ég ætla ekki að efna til spurninga á þessum stað og þessum tíma sem ekki er hægt að veita svar við.