Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. forseti Alþingis kom hér í ræðustól og sagði okkur að hann væri hafður fyrir rangri sök, að við værum að bera hann röngum sökum og værum með stóryrði í því sambandi. Nú hleypur hann undan sjálfum sér og vill hvorki kannast við eigin afstöðu nú né fyrr í dag. Þetta er ömurlega staða sem forseti þingsins er kominn í.