Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseti minnir á að þegar hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar ætla að bera af sér sakir, þá fá þeir orðið til að bera af sér sakir en ekki til að halda langa efnislega ræðu. Forseti hefur efasemdir um að einhverjar sérstakar sakir hafi verið bornar á hæstv. ráðherra en það er rétt að heyra hvað hann hefur fram að færa.
Hæstv. landbúnaðarráðherra óskar að bera af sér sakir.