Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil taka það fram að það mátti búast við því að hvort umræðuefnið sem væri yrði tekið fyrir, 8. dagskrármál eða 12. dagskrármál. Ég vil ítreka það sem ég sagði áður. Ég hafði enga ástæðu til að ætla annað en nefndarálit minni hluta yrði tilbúið fyrir þessa umræðu.