Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég ber fram till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 14. desember 2001 til 22. janúar 2002.``
Tillagan skýrir sig sjálf.