Álverksmiðja í Reyðarfirði

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 16:04:43 (4283)

2003-03-03 16:04:43# 128. lþ. 86.6 fundur 509. mál: #A álverksmiðja í Reyðarfirði# frv. 12/2003, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[16:04]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég var einu sinni áður á þessum fundi búinn að minna á að þingmenn hafa eina mínútu til að gera grein fyrir atkvæði sínu. Ég vil biðja hv. þingmenn að virða það. Ég hef orðið var við að það misskilst ef forseti grípur mjög fram í hjá hv. þingmönnum. Ég vil þess vegna biðja hv. þingmenn að sýna háttvísi að þessu leyti.